
Startup SuperNova er samstarfsverkefni Nova, KLAK - Icelandic Startups og Huawei.
Startup SuperNova hraðallinn var stofnaður árið 2020 og er í dag eitt þekktasta frumkvöðlaverkefni landsins. Umsjón með verkefninu er í höndum KLAK - Icelandic Startups, sem hefur til fjölda ára veitt aðstoð við þróun viðskiptahugmynda og leitt saman hóp hagaðila með verðmætasköpun að leiðarljósi. KLAK aðstoðar sprotafyrirtæki að vaxa innanlands og út fyrir landsteinana með því að hraða þróun þeirra og tengja þau við sérfræðinga, fjárfesta og aðra lykilaðila. KLAK hefur fyrir löngu skipað sér sess sem lykilaðili í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi. Startup SuperNova er gert mögulegt með stuðningi lykilsamstarfsaðila:
Nova, eitt stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins, styður verkefnið og leggur af mörkum sérfræðiþekkingu sína á sviði fjarskipta og tækninýjunga til þess að gefa þátttakendum innsýn í raunverulegar markaðsþarfir. Huawei, alþjóðlegt tæknifyrirtæki í fremstu röð, styður Startup SuperNova og opnar dyr að alþjóðlegu tengslaneti og tæknilegri þekkingu sem getur gert íslensk sprotafyrirtæki samkeppnishæf á heimsmarkaði. Gróska Í Grósku finnur þú kraftmikið vistkerfi af frumkvöðlum og fagfólki sem hrærist í blöndu af áskorunum tengdum nýsköpun á öllum sviðum verðmætasköpunar. Startup SuperNova er starfrækt í hjarta Vísindagarða í Grósku - miðstöð nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á Íslandi. Húsið hefur orðið einn helsti samkomustaður nýsköpunarsamfélagsins á Íslandi og hýsir fjölmörg sprotafyrirtæki, sjóði og stuðningsaðila.





