
Mentorar í Startup SuperNova
KLAK - Icelandic Startups hefur í fjölda mörg ár aðstoðað frumkvöðla og sprotafyrirtæki meðal annars með metnaðarfullu mentoraprógrami. Þjónustan er byggð upp að fyrirmynd MIT Venture Mentoring Service sem hafa þróað fyrirkomulagið í yfir tvo áratugi.
Mentorar í Startup SuperNova:
Eitt það verðmætasta sem Startup SuperNova hraðallinn býður þátttakendum upp á er aðgangur að mentorakerfi KLAK - Icelandic Startups. Fyrirkomulagið byggir á hugmyndafræði MIT Venture Mentoring Service, sem hefur þróað aðferðafræðina í yfir tuttugu ár og er alþjóðlega viðurkennd nálgun.
Mentoraþjónusta KLAK snýst um að tengja frumkvöðla við reynda mentora úr fjölbreyttum geirum atvinnulífsins sem veita frumkvöðlum faglega ráðgjöf, endurgjöf og stuðning í öruggu og uppbyggilegu umhverfi. Mentorar innan KLAK VMS eru valdir með hliðsjón af reynslu, þekkingu og hæfni til að styðja við þarfir sprotafyrirtækja á mismunandi stigum uppbyggingar. Allir hafa þeir hlotið þjálfun á vegum MIT og KLAK.





