Hraðlaið stjarna

Að taka þátt í Startup SuperNova

Startup SuperNova er stökkpallur fyrir sprotafyrirtæki og einstakur vettvangur fyrir þróun nýsköpunarverkefna. Hraðallinn byggir á alþjóðlega sannreyndri aðferðafræði og áralangri reynslu KLAK - Icelandic Startups af stuðningi við frumkvöðla.

Niðurstöðurnar tala sínu máli: Yfir 50% fyrirtækja sem hafa tekið þátt í Startup SuperNova eru enn í rekstri í dag og þátttakendur hafa samanlagt aflað sér yfir tvo milljarða króna í fjárfestingar og styrki. Meðal þekktra fyrirtækja sem hafa teki þátt í hraðalinum má nefna PLAIO, Livey, Keeps, Swapp Agency, Stubbur og Opus Futura; fyrirtæki sem komu inn í hraðalinn með hugmynd og fóru út með skýra stefnu, sterkt tengslanet og mótaða viðskiptaáætlun.

STRUX

STRUX

STRUX sjálfvirknivæðir yfirferð á byggingarteikningum til að tryggja að þær standist kröfur. Með því að greina villur áður en sótt er um spörum við hönnuðum tíma og komum í veg fyrir dýrar tafir í kerfinu.

Appfold 

Appfold 

Appfold er opinn hugbúnaður til að hanna prentplötur (PCB), þar sem gervigreind er fléttuð inn í hönnunarferlið frá grunni. Grunnhugbúnaðurinn verður opinn öllum, þannig að notendur og forritarar geta tekið þátt í að þróa hann og gera hann betri. Ofan á hann byggjum við tekjulíkan með öflugum gervigreindaraðstoðarmanni og markaðstorgi þar sem hægt verður að kaupa og selja tilbúna hönnun og íhluti. Markmið okkar er að Appfold verði fyrir vélbúnaðarhönnun það sem VS Code og Cursor eru fyrir hugbúnaðarþróun.

Comenius

Comenius

Skólastjórnunarkerfi fyrir íslenska leik- og grunnskóla, byggt frá grunni með gervigreind að leiðarljósi. Kerfið heldur utan um mætingu, samskipti, stundatöflur, námsmat og hegðun nemenda á einum stað – í viðmóti sem kennarar vilja raunverulega nota. Kerfið sparar kennurum og öðru starfsfólki þann tíma sem í dag fer í umsýslu og skriffinnsku. Jafnframt nýtir það gögn sem skólarnir búa nú þegar yfir til að greina snemma hvaða nemendur gætu þurft aukinn stuðning, áður en vandinn verður meiri. Kerfið er hannað sérstaklega fyrir íslenskt skólaumhverfi: hver skóli er með sinn eigin dulkóðaða gagnagrunn, aðgengi er tryggt samkvæmt öllum viðeigandi kröfum og kerfið tengist beint við nýjan miðlægan nemendagrunn Íslands.

ELORA

ELORA

Elora er þjónusta sem heldur utan um og framkvæmir greiningar á rafmagnsálagi (Electrical Load Analysis, ELA) fyrir fluggeirann. Flugfélög og önnur fyrirtæki í flugtengdri verkfræði þurfa slíkar greiningar þegar breytingar eru gerðar á loftförum. Markmið okkar er að bjóða ELA-greiningar á hagkvæman hátt með hugbúnaði sem við þróum sjálf. Þannig verða útreikningar nákvæmari og hraðari, auk þess sem auðveldara verður að halda utan um niðurstöður og breytingar.

FreightFlow

FreightFlow

FreightFlow er hugbúnaðarlausn sem einfaldar og sameinar umsýslu vöruflutninga fyrir flutningsmiðlara, fyrirtæki og inn- og útflytjendur á Íslandi. Með FreightFlow er hægt að halda utan um allt ferlið á einum stað – stofna sendingar, fá verðtilboð, ganga frá tollskýrslum og fylgjast með sendingum frá upphafi til enda.

Hrím Bioworks

Hrím Bioworks

Hrím þróar kuldavirk ensím og líffjölliður fyrir iðnað með það að markmiði að draga úr orkunotkun án þess að fórna afköstum. Flest ensím sem notuð eru í iðnaði í dag virka best við 40–60°C. Þegar hitastigið er lækkað til að spara orku minnkar virkni þeirra hins vegar verulega. Þar kemur Hrím til sögunnar. Hrím finnur og þróar ensím sem virka við 20°C eða lægra og gerir þannig fyrirtækjum og neytendum kleift að nýta orkusparandi lausnir sem skila sambærilegum árangri við hefðbundin ensím – en við mun lægra hitastig.

MAGNEA

MAGNEA

Við nýtum rauntímagögn af mörkuðum, greiningar og innsýn til að hjálpa fyrirtækjum í sjávarútvegi að taka upplýstari ákvarðanir um verðlagningu og framleiðslu.

Ogma

Ogma

Leo er smáforrit sem hjálpar börnum með málþroskaröskun að tileinka sér móðurmál sitt. Lausnin sameinar háþróaða gervigreind, þekkingu úr taugavísindum og aðferðir úr atferlisgreiningu til að styðja við málþroska barnsins til lengri tíma. Í appinu er einnig innbyggt samskiptakerfi (AAC) sem auðveldar börnum að tjá sig á meðan þau byggja upp málskilning og færni í töluðu máli.

Saman

Saman

Saman er leikjaveita fyrir hópa þar sem allir spila saman á einum skjá og nota símana sína sem fjarstýringar, án þess að þurfa að sækja app. Einn úr hópnum velur leik, aðrir tengjast með einföldum herbergiskóða og leikurinn getur hafist á örfáum sekúndum.

Sinope

Sinope

Sinope er gervigreindarlausn sem hjálpar sprotafyrirtækjum að undirbúa sig fyrir úttektir og vottanir á nokkrum dögum í stað nokkurra mánaða. Stofnendur leggja inn þau gögn og gögn sem fyrir liggja og gervigreindin metur í rauntíma hvort fullyrðingar og sönnunargögn standist kröfur viðeigandi regluverks. Að lokum verður til fullbúinn og skipulagður úttektarpakki sem hægt er að afhenda beint til úttektaraðila. Engar kerfistengingar. Engir ráðgjafar. Fast verð, 4.000 Bandaríkjadalir fyrir hvert regluverk. Fyrsti hlutinn er ókeypis.