Hraðlaið stjarna

Er þitt fyrirtæki næsta sprengistjarna?

Startup SuperNova er samstarfsverkefni KLAK - Icelandic Startups, Nova og Huawei með stuðningi frá Grósku og er einn mest spennandi viðskiptahraðall landsins.

Í hraðlinum er leitast við að byggja upp hagnaðardrifnar tæknilausnir sem hafa burði til að keppa á alþjóðamarkaði. Árlega eru tíu frumkvöðlateymi valin til þátttöku í sex vikna viðskiptahraðli sem hefst strax eftir verslunarmannahelgi. Teymin fá fræðslu og þjálfun við þróun viðskiptahugmynda sinna og aðgang að fjölda sérfræðinga. Allir þátttakendur í Startup SuperNova fá stuðning frá metnaðarfullri mentoraþjónustu KLAK VMS.

Reglulegir viðburðir eru í boði þar sem teymum gefst enn frekari tækifæri til að koma sér á framfæri og efla tengslanetið. Hraðlinum lýkur með opnum viðburði þar sem þátttakendur kynna lausnir sínar fyrir fjárfestum og lykilaðilum í íslensku atvinnulífi og uppskeruhátíð sprotasamfélagsins síðar sama dag.

Startup SuperNova byggir á alþjóðlega sannreyndri aðferðafræði og áralangri reynslu KLAK af stuðningi við frumkvöðla og sprotafyrirtæki. KLAK hefur til fjölda ára veitt aðstoð við þróun viðskiptahugmynda og leitt saman hóp hagaðila með verðmætasköpun að leiðarljósi. Félagið aðstoðar sprotafyrirtæki að vaxa innanlands og út fyrir landsteinana með því að hraða þróun þeirra og tengja þau við sérfræðinga, fjárfesta og aðra lykilaðila. KLAK hefur skipað sér sess sem lykilaðili í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi og leggur sig fram við að vera leiðandi afl í grasrót frumkvöðlasamfélagsins.

Stökkpallur fyrir sprotafyrirtæki

Allt að tíu teymi eru valin inn í hraðalinn ár hvert í gegnum vandað umsóknarferli og býðst teymunum aðgangur að fullbúinni vinnuaðstöðu meðan á hraðlinum stendur. Í ár hefst Startup SuperNova á tveggja daga Superclass og topp tíu teymum sem komast í gegn um umsóknarferlið býðst svo að taka þátt i sex vikna viðskiptahraðli sem hefst 4. ágúst. Startup SuperNova lýkur svo með glæsilegum fjárfestadegi 18. september.

Superclass 15. – 16. júní

Fasi 1

Gummi með eldræðu
Startup SuperNova hefst á öflugum Superclass þar sem þátttakendur fá þjálfun og leiðsögn við að útbúa 18 mánaða aðgerðaráætlun fyrir verkefnin sín. Superclass Startup SuperNova verður opinn öllum til skráningar.
Skráning í Superclass

Umsóknarfrestur og skil á 18 mánaða plani 28. júní

Fasi 2

Fasi 2
Þátttakendur þurfa að vera tilbúnir með 18 mánaða aðgerðaráætlun sem skila þarf inn ásamt umsókn í hraðalinn.

Topp 10 komast áfram í 6 vikna viðskiptahraðal

Fasi 3

Allt að tíu fyrirtæki eiga þess kost að fá sæti í hraðlinum sem stendur yfir í sex vikur. Markmið hraðalsins er að hraða framgangi sprotafyrirtækisins og að það sé fjárfestingarhæft þegar að hraðli lýkur. Hraðallinn hefst 4. ágúst og honum lýkur þann 18. september

Fjárfestadagur 18. september

Fasi 4

Fasi 4
Startup SuperNova lýkur formlega með fjárfestadegi þar sem teymin kynna verkefnin sín fyrir fullum sal af gestum. Þetta er glæsilegur viðburður sem gaman er að taka þátt í og fylgjast með uppskeru þeirra teyma sem taka þátt.