
Spurt & svarað
Finndu svör, upplýsingar og önnur praktísk atriði um Startup SuperNova.
Fyrir hverja er Startup SuperNova
Við leitum að öflugum teymum með snjallar og skapandi lausnir sem hafa burði til að keppa á alþjóðamarkaði. Hraðallinn hentar bæði nýstofnuðum sprotafyrirtækjum og teymum innan stærri og rótgrónari fyrirtækja sem vilja þróa áfram nýja hugmynd eða tækni. Sérstök áhersla á teymi sem eru að þróa lausnir tengdar fjarskiptageiranum og 5G tækni. Við yfirferð umsókna er litið til sérstöðu og nýnæmis verkefnisins, þess markaðar sem stefnt er á, samsetningar teymisins, sem og áhuga og vilja þátttakenda til að stíga út fyrir þægindarammann og vinna markvisst að markmiðum sínum.
Viðvera og Þátttökukröfur
Hvert sæti í Startup SuperNova er verðmætt og við gerum því skýrar kröfur til þeirra sem býðst tækifæri til að taka þátt.
Hraðallinn fer fram þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga í sex vikur (4. ágúst – 18. september, að undanskilinni einni viku þar sem ráðstefnan TechBBQ fer fram í Kaupmannahöfn). Gert er ráð fyrir virkri þátttöku og mætingu allra teyma allan hraðalinn. Við hvetjum þátttakendur því eindregið til að verja tíma með hópnum og nýta öll þau tækifæri sem hraðallinn býður upp á, enda verður mikill lærdómur, tengslamyndun og ávinningur til í samverunni utan formlegra dagskrárliða.
Öll teymi þurfa jafnframt að undirbúa sig fyrir og taka þátt í fjárfestadeginum 18. september í Reykjavík, sem er lokaviðburður hraðalsins.
Er hraðallinn einnig fyrir fyrirtæki sem eru nú þegar í rekstri?
Það er ekki skilyrði að fyrirtækin séu nýstofnuð, enda er algengt að nýjar hugmyndir verði til hjá starfsfólki rótgrónari fyrirtækja. Slík fyrirtæki geta sent teymi í Startup SuperNova til að þróa áfram nýja hugmynd eða tækni.
Hvað kostar að taka þátt?
Þátttaka í hraðlinum kostar ekkert.
Er viðskiptahugmyndin mín örugg í ykkar höndum?
Já. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarupplýsingar.
Hvar er aðsetur Startup SuperNova?
Startup SuperNova er starfrækt í hjarta Vísindagarða í Grósku, þar sem finna má suðupott nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á Íslandi í nálægð við háskóla, Landspítalann og mörg helstu nýsköpunarfyrirtæki landsins. Sú staðsetning veitir einstakt tækifæri til tilrauna, þekkingarflæðis og verðmætasköpunar.
Innifalið
Þátttakendur fá aðgang að stórum hópi leiðandi sérfræðinga og fjölda tækifæra til að efla tengslanetið og koma hugmyndinni á framfæri. Við bjóðum upp á stútfulla dagskrá meðan á hraðlinum stendur sem miðar að því þróa áfram viðskiptahugmyndir og koma vöru á markað.
Umsóknarferlið
Superclass er tveggja daga undirbúningsnámskeið 15. - 16. júní í Grósku sem er opið öllum sem hafa áhuga á að sækja um í hraðalinn. Þátttaka er ekki forsenda umsóknar en er frábær undirbúningur sem veitir gott forskot. Í Superclass fá teymi tækifæri til að vinna að 18 mánaða aðgerðaráætlun sinni og kynnast hraðlinum og samstarfsaðilunum.
Eftir Superclass hafa teymi svigrúm til að skila inn fullkláraðri umsókn. Hópur reynslumikilla sérfræðinga fer yfir allar umsóknir og gefur þeim einkunn. Stigahæstu teymin eru boðuð í viðtal og að lokum eru allt að tíu teymi valin til þátttöku í hraðlinum.
Fleiri spurningar?
Endilega hafðu samband í tölvupósti á netfangið hello@klak.is





