SjálfsVörn - Öryggiskerfi
Settu saman þitt eigið öryggiskerfi
Smelltu þér í Hjálpina og finndu allskonar upplýsingar, leiðbeiningar og tæknital um allt sem við bjóðum upp á.
SjálfsVörn hjá Nova
Hvað er SjálfsVörn?
Með SjálfsVörn hjá Nova hefur öryggi heimilisins aldrei verið ódýrara og snjallara! Ekkert startgjald, frábært verð, hágæða heimakerfi og heimilið beintengt við símann.
Við erum að tala um snjallt heimavarnarkerfi frá Ajax sem þú getur sniðið að þínum þörfum. En hvar á að byrja? Við erum búin að taka saman nokkrar samsetningar á nova.is/sjalfsvorn eftir stærð húsnæðis sem er gott að byrja á, þú getur svo bætt við eða fækkað skynjurum og sniðið SjálfsVörnina þannig að hún smellpassi í þitt húsnæði.
Aðal vörurnar sem við mælum með að hafa eru reykskynjari, vatnsskynjari, hurðaskynjari, hreyfiskynjari með myndavél og svo auðvitað stjórnstöðin sem heldur utan um alla skynjarana og sendir helstu upplýsingar beint í Ajax appið til þín. Það eru líka fleiri vörur í boði eins og fjarstýringar, magnarar fyrir stór hús, snjallhnappar og margt fleira.
Svo er allt þetta í Ajax appinu í símanum þínum og þú færð tilkynningu um leið og eitthvað óvenjulegt á sér stað á heimilinu þegar þú ert að heiman, til dæmis ef uppþvottavélin fer að leka, reykskynjarinn byrjar að pípa eða ef einhver brýst inn.
Þú getur að sjálfsögðu boðið allri fjölskyldunni í appið svo hver einasti fjölskyldumeðlimur getur tekið kerfið af og sett það á eftir hentisemi. Svo þegar þú ferð í frí getur þú líka gefið nágrannanum tímabundinn aðgang að kerfinu. Það er nefnilega allskonar hægt í Ajax appinu.
Hverju get ég stjórnað í appinu í símanum mínum?
Í Ajax appinu sérðu yfirlit yfir alla skynjara sem eru heima hjá þér og getur stjórnað því hvenær er kveikt og slökkt á kerfinu. Þú færð tilkynningar beint í appið ef eitthvað óvænt gerist þegar þú ert að heiman, til að mynda sendir vatnsskynjarinn tilkynningu ef eitthvað fer að leka óvænt, eða ef hreyfiskynjarinn nemur hreyfingu þegar kerfið er á.
Í Ajax appinu getur þú meðal annars fylgst með ástandi allra tækja, séð stöðuna á batteríinu í hverju tæki fyrir sig og skoðað myndir úr myndavélunum þegar þær taka myndir. Þú getur líka bætt fjölskyldunni inn í Ajax appið og stjórnað hvaða réttindi hver og einn er með, sett á næturstillingu ef einhver er heima en þú vilt að kerfið passi upp á að enginn komi óvelkominn inn á heimilið og svo eru fleiri stillingar í boði fyrir lengra komna snjallöryggis nörda.
Við erum allskonar leiðbeiningar um stillingar í Ajax appinu í Hjálpinni og ef þú vilt fara í stillingar fyrir lengra komna þá er heill hafsjór af fróðleik á heimasíðu Ajax.
Getur hver sem er verið með SjálfsVörn?
Já ekki spurning, það geta allir verið með snjallt hágæða heimakerfi sem er beintengt við snjallsímann! Þú bara smellir þér inná nova.is/sjalfsvorn, þar sem þú getur kynnst kerfinu betur og klárar svo málið í næstu verslun Nova eða á https://www.nova.is/barinn/snjalloryggi
Hvernig greiði ég fyrir SjálfsVörn?
SjálfsVörn er snjallöryggiskerfi fyrir heimilið, en þú byrjar á því að bæta stjórnstöðinni í körfuna og velur svo hvaða skynjarar henta þínu heimili. Þú getur verslað Ajax vörurnar í verslunum Nova og í vefverslun Nova á https://www.nova.is/barinn/snjalloryggi
Get ég fengið uppsetningu á SjálfsVörn?
Nova sér ekki um uppsetningu á snjallöryggiskerfum, en ef þú þarft aðstoð við uppsetningu mælum við með að heyra í þínum uppáhalds iðnaðarmanni.
Hvernig set ég upp Ajax öryggiskerfið sjálf/ur?
Undirbúningur Sæktu Ajax appið (iOS/Android eða Desktop) og búðu til aðgang. Þú bætir tækjum við kerfið með því að skanna QR-kóða í gegnum appið.
Tengdu stjórnstöðina (Hub). Tengdu hana við rafmagn og internet (stjórnstöðin kemur með sim korti frá Nova). Stjórnstöðin þarf netsamband til að tala við Ajax Cloud og fá uppfærslur.
Bættu stjórnstöðinni við í appinu Opnaðu appið → Add hub → skannaðu QR-kóðann á Hub (hann er líka oft á umbúðum). Gefðu heimilinu/vinnustaðnum nafn („Space“) og staðfestu.
Bættu skynjurum við Fyrir hvern skynjara: app → Add device → skanna QR-kóðann (oft undir SmartBracket festiplötunni) → veldu herbergi.
Settu upp hreyfiskynjara (MotionProtect o.þ.h.) Festu á lóðréttan vegg í um 2,4 m hæð. Rangt hæðar-/hallasetup getur skert nákvæmni.
Settu upp hurðar/gluggaskynjara (DoorProtect) Festu skynjara á karm og segul á hurð/glugga þannig að þeir séu í sömu línu og innan tilgreinds bils. Fylgdu handbókinni fyrir festingu og prófanir.
Prófaðu merki áður en þú skrúfar senora endanlega Í appinu: Devices → Settings → Jeweller Signal Strength Test. Gakktu með skynjarann á fyrirhugaðan stað og keyrðu prófið til að tryggja stöðugt samband (mælt er með að athuga í 2–3 mínútur; færðu tækið ef merkið er lélegt).
Ljúktu stillingum og prófunum Stilltu hvaða herbergi og viðburði hver skynjari á að vakta og prófaðu svo kerfið. Til dæmis með því að opna hurðir/glugga og ganga í gegnum svæði til að sjá að viðvaranir berist í appið.
Bættu við öðrum Ajax-tækjum eins og við á Sama ferli gildir: skanna QR og setja upp skv. handbók hvers tækis (t.d. rofar, útisensora o.s.frv.).
ATH. Festu tæki á hreint, þurrt yfirborð og forðastu beina sól eða hitagjafa. Ef þú ert óviss um rafmagnsvinnu (t.d. 230V rofa), fáðu fagmann í verkið eða skoðaðu Ajax kerfið á leigu, en þá fylgir uppsetning fyrir allt að 10 tæki frítt með.
Hver er munurinn á AJAX öryggiskerfi og öðru snjallöryggi?
SjálfsVörn hjá Nova samanstendur af öryggisvörum frá Ajax. Ajax vörurnar hafa hlotið Grade 2 öryggisvottun, sem þýðir að kerfið stenst helstu nútíma öryggiskröfur. Það er til dæmis ekki hægt að slá út kerfinu ef rafmagn eða nettenging dettur út því Ajax stjórnstöðin er með 4.5G varaleið og getur keyrt á batteríi í 16 klukkustundir. Það er heldur ekki hægt að slá út öryggiskerfinu með hvers kyns tólum sem bjóða upp á að rugla í netmerkinu þínu, en það er vegna þess að Ajax vörurnar tala saman á sínu eigin tungumáli. Svo er myndavélin ekki í stöðugu streymi, heldur tekur hún kyrrmyndir þegar kerfið sér hreyfingu þegar það er í gangi og sendir beint í appið í símanum hjá þér.