Dansgólfið

10. sept 2026

iPhone 18 Pro forskrán­ing 12. sept­me­ber & Hvað var að frétta á Apple Keynote?

iPhone 18 Pro forskráning 12. septmeber & Hvað var að frétta á Apple Keynote?

Allt það helsta frá Apple Keynote🍎

Apple svipti hulunni af nýjustu eplakörfunni sinni á Apple Keynote, sem fram fór í gær. Þar voru kynntir til leiks nýir iPhone 18 Pro og iPhone 18 Pro Max. Það vakti ekki síður athygli að Apple kynnti ekki hefðbundinn iPhone 18, heldur aðeins Pro og Pro Max tæki.

Við fengum einnig að sjá tvö ný Apple snjallúr: Apple Watch Series 12 og Apple Watch Ultra 4. Hvað annað? Jú, leggið nú við hlustir, því Apple gefur okkur splunkuný AirPods 5 heyrnartól sem verða á mjög góðu verði.

Senuþjófur gærdagsins var þó án efa iPhone Duo, fyrsta snjalllokan frá Apple, með risastóran skjá sem beygist og sveigist!

Forskráning fyrir nýbökuðum eplum hefst 12. september

Forskráning fyrir iPhone 18 Pro, iPhone 18 Pro Max, Apple snjallúrin og AirPods 5 hefst hjá Nova laugardaginn 12. september! Við hvetjum öll sem vilja fá fréttir beint í æð um hvenær tækin koma í sölu hjá Nova til að skrá sig á forskráningarlistann.

Tilkynnt verður síðar hvenær forskráning fyrir iPhone Duo hefst!

Kafað á tækni dýptina frá Apple Keynote

Ef þig þyrstir í fróðleik um tæknigetur og specca á nýjustu tryllitækjunum frá Apple þá færðu hann beint í æð hér að neðan

iPhone 18 Pro og iPhone 18 Pro Max

iPhone 18 Pro og Pro Max er öflugustu snjallsímarnir frá Apple frá upphafi. A20 Pro-flaga sér um að keyra allt áfram og býður upp á gríðarleg afköst og öfluga AI-getu, en ný kynslóð gufukælingar hjálpar símanum að halda fullum krafti þegar mest reynir á.

Pro-myndavélakerfið fær líka myndarlega uppfærslu með 48 MP Fusion-aðalmyndavél, stillanlegu ljósopi, meiri dýptarskerpu og enn betri myndgæðum við litla birtu. Rafhlöðuendingin tekur sömuleiðis stórt stökk og iPhone 18 Pro Max endist allt að sex klukkustundum lengur en iPhone 17 Pro Max.

Helsti munurinn á Pro og Pro Max er að Max-inn er þyngri, með stærri skjá og rafhlöðu.

iPhone Duo

Stærsta nýjung kvöldsins var án efa iPhone Duo! fyrsti samanbrjótanlegi snjallsíminn frá Apple. Þegar síminn er opnaður blasir við stærsti skjár frá upphafi, 50% stærri en skjárinn á iPhone 18 Pro Max.

Hægt er að nota öpp hlið við hlið, vinna í þeim samtímis og taka FaceTime-símtöl án þess að þurfa að nota front myndavélina. Hann er búinn A20 Pro-flögunni, 48 MP Dual Fusion-myndavél, títanumgjörð og tvískiptu rafhlöðukerfi sem endist allan daginn.

iPhone Duo er væntanlegur.

Apple Watch Series 12

Besta tækið fyrir heilsuna verður enn betra. Nýtt skynjarakerfi vinnur með S11-flögunni og gerir úrinu kleift að fylgjast enn nákvæmar með hjartslætti og öðrum mikilvægum heilsumælingum.

Uppfærðir skynjarar og stærri, orkunýtnari LED-ljós hjálpa þér að fá betri innsýn í heilsuna. Nú geturðu svo sannarlega fylgt hjartanu.

Apple Watch Ultra 4

Apple Watch Ultra 4 er gert fyrir þau sem vilja fara aðeins lengra. Háþróaðar heilsu- og hreyfimælingar, nákvæmt GPS-kerfi með tvöfaldri tíðni og lengri rafhlöðuending á æfingum hjálpa þér að æfa markvissar og halda áfram í átt að markmiðunum.

AirPods 5

AirPods 5 bjóða upp á enn betri hljómgæði, sérsniðið Spatial Audio og kvika höfuðrakningu. Endurhönnuð hljóðuppbygging og ný kynslóð Adaptive EQ gera hlustunina enn skýrari og kröftugri, auk þess sem virka hljóðdeyfingin er allt að 1,5 sinnum öflugri en í fyrri kynslóð.